155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:25]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég veit það er ekki ráðherra eða ráðuneytið sem setur þessi skilyrði. Þetta eru verkfæri Seðlabankans en það eru líka önnur skilyrði sem vert er að skoða. Það eru skilyrði gagnvart byggingaraðilum. Þegar ég skoða fasteignaauglýsingar sé ég ekki mikið af íbúðum sem uppfylla þau skilyrði sem verið er að setja um ódýrar byggingar. Ég held og mér sýnist að ekki hafi verið tekið — af því að ráðherra hefur minnst mikið á verðbólgu — nægilegt tillit til þeirrar verðbólgu sem ríkt hefur í landinu og að skilyrðin sem íbúðir þurfa að uppfylla fyrir hlutdeildarlán séu allt of ströng og þröng. Það þarf að fara að meta þetta með hliðsjón af því að hér ríkir verðbólga og við þurfum að endurskoða þessi skilyrði, (Forseti hringir.) bæði af hálfu ríkisvaldsins og einnig af hálfu Seðlabankans, (Forseti hringir.) af því að unga fólkið er tekjulægsta fólkið. (Forseti hringir.) Þess vegna þarf þetta úrræði að ná alla leið.