155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:26]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka vangaveltur hv. þingmanns og ég held að það sé afar mikilvægt og rétt sem hann nefnir hér sérstaklega að hluti af viðfangsefninu er á mínu borði. Ég hef líka rætt um aðkomu sveitarfélaganna, sem enn eru með skipulagsvaldið auðvitað og þar með lóðaframboðið á sinni könnu, og svo aðkomu Seðlabankans o.s.frv. Þetta eru allt saman þátttakendur í því sem undir er og svo auðvitað aðilar vinnumarkaðarins þegar við erum að tala um úrvinnslu og aðkomu stjórnvalda að kjarasamningum. En ábending hv. þingmanns sem lýtur að annars vegar greiðslubyrðinni og hins vegar skilyrðunum finnst mér bara réttmæt vangavelta. Hlutdeildarlánin eiga að vera fyrir kaupendur og viðmiðið þarf að byggjast á því að það þjóni því markmiði að fyrstu kaupendur, sem eru tekjulægri hópur samfélagsins, geti keypt sér íbúð. Það var markmiðið.