fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Í þessu fjárlagafrumvarpi er áfram lagður grunnur að samfélagi þar sem þekking, nýsköpun og ábyrg stjórnsýsla er höfð í forgrunni. Háskólar landsins eru efldir með nýrri árangurstengdri fjármögnun um leið og aðgangshindrunum er rutt úr vegi sem þegar hefur skilað sér í fjölgun nemenda, auk þess sem fjárfest er hressilega í stuðningsumhverfi nýsköpunar. Við erum að efla háskólastigið með margvíslegum aðgerðum og má þar nefna árangurstengda fjármögnun háskólanna sem er grundvallarbreyting og eykur sveigjanleika og fjölbreytni. Við erum að boða sókn á sviði háskóla um 5 milljarða og á þessu ári og því næsta eru framlög til háskólanna aukin um 3,9 milljarða kr. í gegnum árangurstengda fjármögnun. Árangurinn lætur ekki á sér standa. Á síðastliðnum tveimur árum hefur umsóknum í háskólana fjölgað um 20%. Á næsta ári aukast fjárveitingar til háskólanna um 1.400 millj. kr. til eflingar starfsemi skólanna og til að auka samkeppnishæfni þeirra í alþjóðlegum samanburði í samræmi við árangur þeirra við kennslu og rannsóknir og aðra starfsemi í þágu samfélagsins. Við ætlum að fjölga nemendum og fjölga nemendum í greinum sem eru samfélagi okkar mikilvægar. Við leggjum áherslu á að fjölga nemendum í svokölluðum STEAM-greinum og heilbrigðisvísindum og þeim hefur þegar fjölgað í takt við þær áherslur. Það er lykilþáttur til að efla samkeppnishæfni þjóðarinnar.
Í frumvarpinu er síðan boðuð uppbygging háskólahúsnæðis sem mun bæta innviði og umgjörð til rannsókna og náms. Þar má nefna hús heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands hjá Nýja Landspítalanum, jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands og húsnæði fyrir fiskeldisrannsóknir og nám í hestafræðum við Háskólann á Hólum. Samhliða þessu er samstarf háskólanna aukið með það fyrir augum að nýta betur innviði þeirra og stoðþjónustu og stuðla að uppbyggingu rannsóknarinnviða og auka sveigjanleika í námi og efla alþjóðasamstarf.
Í frumvarpinu er að finna margvíslegan stuðning við nýsköpun og atvinnulíf en stuðningur við nýsköpunarumhverfið hefur margfaldast á síðustu árum og hefur stuðningur stjórnvalda skipt sköpum í uppbyggingu tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi á undanförnum árum. Útflutningstekjur geirans hafa fimmfaldast á síðustu 15 árum og skattgreiðslur hugverkaiðnaðarins aukist um 30% frá árinu 2017.
Í fjárlögum ársins 2025 má finna stuðning við samkeppnissjóði hins opinbera. Þeim er viðhaldið meðfram einföldun sjóðaumhverfisins til að hámarka nýtingu. Við erum að leggja fram frumvarp um fækkun sjóða til þess að hagræðingin komi fram sérstaklega í yfirbyggingunni. Heildarumsýslukostnaður sjóðanna á vegum allra ráðuneytanna nemur árlega um 840 millj. kr. og þá er ótalinn kostnaður vegna ýmissa starfsmanna ráðuneyta og stofnana en umsýsluaðilar eru í heild 37. Þarna eru mikil tækifæri til að fara betur með almannafé og stuðla að meiri skilvirkni ásamt því að við komum á laggirnar einni umsóknargátt. Um áramót tekur Nýsköpunarsjóðurinn Kría til starfa sem er samruni Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu. Endurgreiðslur til fyrirtækja vegna rannsókna og þróunar hafa aukist mikið á síðustu árum og hlutfallið hefur hækkað. Ef við ætlum að standast samkeppni og styðja öflugt nýsköpunarumhverfi þá þurfum við að festa þennan mikilvæga stuðning í sessi og tryggja að framkvæmdin sé hafin yfir allan vafa. Við fengum uppbyggilegar athugasemdir frá OECD sem við vinnum nú úr og koma fram í frumvarpi frá hæstv. fjármálaráðherra.
Loks eykst stuðningur við þátttöku innlendra aðila í samstarfsáætlun Evrópusambandsins um menntun, rannsóknir og tækniþróun um rúmar 950 millj. kr., en kostnaðarhlutdeild þar fer eftir landsframleiðslu. Hún hefur verið meiri hér á landi en annars staðar í Evrópu og þess vegna hækkar þessi liður. Sókn á þessum sviðum kallar á sérhæft starfsfólk. Við þurfum áfram að einfalda regluverk og höfum tekið ákvarðanir um að gera erlendum sérfræðingum auðveldara að setjast að hér á landi.
Gervigreindin ýtir á alla málaflokka ráðuneytisins. Við erum að móta heildstæða löggjöf um hana og leggja lokahönd á aðgerðaáætlun sem verður kynnt fljótlega. Hún mun strax hafa áhrif til að auka skilvirkni hins opinbera.
Tæknibreytingar og netöryggi eru í brennidepli. Við höfum náð markverðum árangri og í dag var kynnt ný úttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins á netöryggi þjóða þar sem við erum hástökkvarar og förum úr 58. sæti upp í 23. sæti vegna aðgerðaáætlunar í netöryggi þar sem við höfum helst bætt okkur í þekkingu og hæfni, sem við lögðum áherslu á og settum markmið um í fjármálaáætlun og höfum nú þegar náð markmiði ársins 2029. (Forseti hringir.)
Ég treysti á stuðning þingsins í þessum mikilvægu verkefnum sem fram undan eru. Við þurfum að hugsa til framtíðar. Hér er um að ræða hugvits- og þekkingargreinar og við þurfum að festa nýjar útflutningsgreinar í sessi.