155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:36]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Allir háskólarnir koma betur út ár frá ári út af þeirri sókn sem þessi ríkisstjórn hefur boðað í háskólamálum og eru að fá aukna fjármuni í gegnum árangurstengt fjármagn. Hvernig hefur það áhrif á Háskóla Íslands? Jú, hann hefur t.d. gjörbreytt sínu deililíkani og því hvaða hvata hann hefur innan borðs í sínum skóla til að útdeila því fjármagni sem kemur úr þessu fjármögnunarlíkani. Það var gríðarlega ánægjulegt að sjá þær breytingar á ársfundi Háskóla Íslands og spenningur yfir því að við séum loksins komin með fjármögnunarlíkan sem beðið hefur verið eftir í fjölda ára. Ég býst við að það muni gefa Háskóla Íslands enn þá meira tilefni til að sækja fram og gera enn þá betur og þau binda líka vonir við slíkt.

Varðandi áhersluna á raunvísinda-, tækni- og listgreinar þá hefur hún auðvitað sést markvisst í því að bjóða Listaháskólanum það að þiggja 100% framlag í gegnum reiknilíkanið eins og aðrir skólar. Þar erum við að jafna tækifæri nemenda og jafna stöðu opinberra og einkarekinna skóla. Varðandi raunvísinda- og tækniáherslurnar sem eru ekki síður mikilvægar þá er það bara svo að þarna dregur úr samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegan mælikvarða en ekki síst er bagalegt fyrir þau fyrirtæki sem vantar sérstaklega sérfræðinga að þessum mannauði sé ekki fyrir að fara í íslensku samfélagi. Það vantar verulegan fjölda fólks úr þessum greinum, það er ekki síst gagnvart ýmsum vísindagreinum, í jarðvísindum og áskorunum sem þar eru fram undan og ekki síður gagnvart tölvunarfræðinni og tengslum við gervigreind og netöryggi o.fl. Við erum að setja þetta á dagskrá og við erum að sjá aukningu en þarna erum við í 87. sæti meðal þjóða. Þetta dregur okkur niður þegar við berum okkur saman aðra í nýsköpun og samkeppnishæfni á alþjóðlegum mælikvörðum. (Forseti hringir.) En þarna er ekki síst fjöldi tækifæra fyrir ungt fólk sem verður á vinnumarkaði framtíðar og við þurfum að kynna það fyrir þeim fjölbreyttu tækifærum sem þar eru líka.