fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég verð samt að segja að ég er forvitin um hvernig nýja reiknilíkanið og fjármögnun háskólanna á eftir að raungerast og við eigum eflaust eftir að sjá til botns í þessu. En eins og þetta var kynnt síðasta haust þá voru margir lausir endar. Ég hef þó skilning á því og ætla að sýna sanngirni hér í upphafi þingárs. Varðandi STEM og STEAM þá tek ég eftir því að hér er vísað sérstaklega til Listaháskólans, sem er góðra gjalda vert, það er það, að hafa skýrar áherslur í einhverjar áttir en ég held að við séum á ákveðnum tímamótum. Ég veit að við verðum, og nú ætla ég bara að fullyrða, við verðum að reiða okkur á háskólasamfélagið til þess að stuðla að samkeppnishæfni Íslands, til þess að vera þjóð á meðal þjóða sem kann að lesa á eigin tungumáli og við verðum að sinna íslensku móðurmáli og lyfta því upp og við gerum það allra best í gegnum háskólasamfélagið. Íslenskt mál nýtur ekki verndar nema háskólasamfélagið standi með málinu og sé samstiga í því að efla kennslu á öllum skólastigum í málinu okkar og (Forseti hringir.) háskólarnir standa sig ekki vel í því verkefni nema fjármagnið fylgi með og stjórnvöld standi með háskólunum.