155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:39]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og tek undir mikilvægi háskólans í samkeppnishæfni lands og þjóðar. Þessi ríkisstjórn hefur heldur betur sýnt háskólunum þá virðingu að taka þá sérstaklega með í málefnum samfélagsins, í nýsköpun, rannsóknum og þróun, tækni og fleira í þessu ráðuneyti og við höfum klárað verkefni sem hafa ekki náðst að klárast mörg kjörtímabil í röð vegna anna í kannski öðrum menntamálum. Háskólarnir hafa fengið þá alúð sem þeir eiga skilið á síðustu árum og við sjáum að skólarnir eru spenntir að vinna eftir nýju reiknilíkani.

Gagnvart íslenskunni erum við búin að fjármagna fjölda mikilvægra aðgerða og ég tek þarna undir með hv. þingmanni. Þar má nefna háskólabrú fyrir innflytjendur, stuðning við íslensku sem annað tungumál, aukið fjarnám í íslensku sem kallað var eftir til þess að styðja við íslenskukennslu um land allt en líka ýmsa ráðgjöf og öflun þekkingar á máltöku ólíkra aldurshópa, sem er rannsóknarverkefni, þannig að það er (Forseti hringir.) fjöldinn allur af verkefnum og aðgerðum sem snúa að íslenskunni, sem ég hef ekki tíma til að fara í hér, sem hafa verið fjármögnuð með réttum hvötum á háskólastigi.