fjárlög 2025.
Forseti. Mig langar að byrja á að spyrja hæstv. ráðherra aðeins varðandi háskólastigið. Núna er búið að afnema skólagjöld í einkareknum háskólum, alla vega þeim smærri í þeim hópi, sem út af fyrir sig er jákvætt skref. Þetta eykur möguleika fólks á að velja sér nám sem hentar áhuga og hæfileikum. Þessi ákvörðun var tekin án þess að henni yrði væri rennt í gegnum þinglega meðferð. Þetta er ákvörðun sem var tekin uppi í ráðuneyti án þeirrar umræðu sem hefði kannski verið gott að taka um það hvert við stefnum háskólastiginu með breytingu af þessu tagi. Þá langar mig að spyrja: Hver er uppruni fjármagnsins sem breytingin krefst? Mun þetta leiða til viðbótarfjármögnunar í háskólakerfið eða verður þetta tekið af opinberu háskólunum sem eru nú þegar undirfjármagnaðir? Þar vorum við í fyrra undir meðaltali OECD-landanna og langt undir meðaltali norrænu ríkjanna. Háskólastigið hefur verið of veikt á síðustu árum. Því hefur ekki verið gefið það fjármagn sem þarf til að byggja það nógu vel upp. Mig langar að spyrja ráðherra hvort þessi breyting á fjármögnunarlíkani sem styður einkareknu háskólana verði til þess að veikja það enn frekar?