fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Þegar ákvarða á nýtt fjármögnunarlíkan þá þarf að taka tillit til ýmissa þátta. Við horfðum til Norðurlandanna og þeirra sem eru að standa sig hvað best þegar kemur að sókn á háskólastigi og tókum margvíslega reynslu þaðan inn í þetta fjármögnunarlíkan. Ein af þeim ákvörðunum sem þurfti að taka var hvar ætti að miða við að einkareknir skólar fengju úr líkaninu. Það var ógagnsætt. Það var misjafnt eftir einkareknum skólum og það var hvergi ákvarðað eða sett niður hversu mikið hlutfall þeir fengju. Það var bara aðeins lægra af því að þeir innheimtu skólagjöld af nemendum.
Hv. þingmaður spyr: Hefur þetta áhrif til að veikja háskólastigið? Þvert á móti. Þetta hefur þau áhrif að það er aukið aðgengi að háskólanámi. Það er jafnt aðgengi inn í fleiri skóla óháð efnahag. Það eru fleiri sem geta sótt sér nám í fjarnámi, t.d. á Bifröst, og við erum að sjá það að allir skólar koma betur út þrátt fyrir þessa ákvörðun. Ég myndi gjarnan vilja ræða háskólamálin oftar hér. Hér er um að ræða reglugerð, hvernig fjármagni er útdeilt og það þurfti ekki lagabreytingu fyrir þessa fjármögnun.
Varðandi kostnaðinn af þessum lið þá er hann svona í kringum hálfan milljarð við þessa tvo skóla. En það er að koma inn ný fjármögnun, 1,4 milljarðar, sem mætir auðvitað þeim kostnaði vel og gott betur fyrir alla aðra skóla. Það er því ekki verið að taka af öðrum skólum heldur erum við að ákvarða hvernig við skiptum þeim potti og því fjármagni með gagnsæjum hætti í fyrsta sinn, sem ég hlýt að telja að þingið fagni sérstaklega af því að það hefur verið bent á það ár eftir ár að ekki hefur verið fyrir gagnsæi að fara um það hvernig þessar ákvarðanir eru teknar til þessa, (Forseti hringir.) þannig að þetta er gríðarlegt tækifæri til sóknar. Þetta er gert á Norðurlöndunum (Forseti hringir.) og í þessu felast bara sóknarfæri til að færa okkur nær Norðurlöndunum að öllu leyti.