155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:45]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Mig langar að setja fyrri spurningu mína í samhengi við frumvarp sem er á þingmálaskrá hæstv. ráðherra fyrir veturinn sem snýst um að veita opinberu háskólunum heimild til innheimtu skólagjalda vegna nemenda utan EES-svæðisins. Þetta frumvarp kom mér nefnilega dálítið á óvart í ljósi þess að síðasta vor samþykktum við áætlun um það m.a. að auka alþjóðavæðingu í háskóla og vísindastarfi. Hér í þessu frumvarpi er verið að búa til efnahagslegan hvata fyrir háskólana til að reisa hindranir gegn alþjóðavæðingu, eða öllu heldur reisa hindranir gegn ákveðinni tegund alþjóðavæðingar. Það getur varla verið ætlun ráðherra og ríkisstjórnar að við tökum bara inn ríka stúdenta. Við hljótum að vilja fjölbreyttan hóp fólks með góðar hugmyndir til að auðga háskólasamfélagið. Er þessi fyrirhugaða frumvarpsgerð að einhverju leyti hugsuð til að koma til móts við (Forseti hringir.) mögulegt tekjugat í fjármögnunarlíkani háskólanna sem afnám skólagjalda einkaskólanna skilur eftir sig?