155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:48]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir sína framsögu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra nánar út í nokkur atriði á málefnasviði 7, Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar, sér í lagi aðhaldskröfuna. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu nemur hlutdeild málaflokks 7.10, Vísindi og samkeppnissjóðir í rannsóknum, í aðhaldskröfu málefnasviðsins 537,5 milljónum króna. Þar undir heyra samkeppnissjóðir á sviði vísinda og nýsköpunar, svo sem Rannsóknasjóður, Tækniþróunarsjóður og Innviðasjóður. Af þessum þremur sjóðum fær Rannsóknasjóðurinn hlutfallslega minnsta lækkun sjóða nú á málefnasviðinu eins og fram kemur í fjárlögunum. Hlutverk Rannsóknasjóðs er í raun tvíþætt; annars vegar að búa til nýja þekkingu og hins vegar að þjálfa vísindafólk. Ég hygg að ég og hæstv. ráðherra séum sammála um að fleira fólk vanti til að vinna þessi sérhæfðu störf og sinna grunnrannsóknum sem eru forsenda nýsköpunar. Ný þekking og þjálfun vísindafólks, m.a. með því að styrkja doktorsnám og veita styrki til nýdoktora, er jú akkúrat grundvöllurinn að nauðsynlegum störfum við rannsóknir og nýsköpun og er þá ótalið mikilvægi þekkingarinnar sem grundvallar ákvarðana.

Hlutdeild málaflokks 7.2, Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar, í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur rúmum 2,1 milljarði kr. Það vakti athygli mína að samhliða því að hugmyndin er að draga úr útgjaldavexti styrkja til nýsköpunarfyrirtækja verður eftirlit með endurgreiðslum sömu fyrirtækja aukið. Það tel ég afar brýnt enda eftir því kallað. Í þessu samhengi langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki hafi komið til greina að hlífa samkeppnissjóðunum á sviði rannsókna og vísinda fyrir aðhaldskröfu og jafnframt spyrja hver áformin séu til framtíðar með tilliti til frekari aukningar að nýju til þessara sjóða.