fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Því er gjarnan haldið á lofti í umræðunni að umsýslukostnaðurinn við samkeppnissjóði sé hár og að honum megi ná niður með fækkun sjóða og sameiningu. Það verður bara gott fyrir okkur hér að glíma við boðað frumvarp hæstv. ráðherra í þá veru. Sjálfsagt má taka til í sjóðaumhverfinu, nýta samlegð og fara betur með fjármuni. Fagleg umsýsla sjóðanna kostar sitt en horfa þarf til þess að stjórnir hinna mismunandi sjóða endurspegli breidd og fagleg sjónarmið vegna mismunandi málaflokka sem undir sjóðina heyra. Í einhverjum tilfellum er mat erlendra sérfræðinga á umsögnum nauðsynlegt til að ná faglegum og breiðum sjónarmiðum fram við yfirferð á umsóknum. Lækkun á umsýslukostnaði má ekki þýða ófaglegra ferli að mínu mati. Í þessu samhengi langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hver afstaða hennar sé til þess að horft sé til faglegrar breiddar við samsetningu stjórnar sjóða sem styðja við rannsóknir og nýsköpun.