fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Að sjálfsögðu þarf að gæta að því að faglega sé staðið að úthlutun alls fjármagns hins opinbera og ekki síst í þessu sjóðaumhverfi. Staðan er aftur á móti sú í dag að gagnsæi gagnvart úthlutun, þegar úthlutun fer ekki fram hjá Rannís, er mjög lítið. Sömu aðilar gætu verið að fá úr nokkrum sjóðum hins opinbera án þess að við áttuðum okkur á því. Þó að þeir hafi kannski lagt upp með að fá 5 milljóna styrk þá gæti það farið svo að það fáist á nokkrum stöðum. Ég tel að með sameiginlegu ferli, með gagnsærri sjóðagátt sem og þessu áhrifamati sjóða sem ég boða, þá getum við farið betur með fé, gert enn betur í að hafa faglega breidd þegar kemur að úthlutun og nýtt okkur á sama tíma tækni og gervigreind og gert það gagnsætt gagnvart því hvert fjármunirnir eru að fara, eins og Rannís hefur gert með sínu gagnatorgi. Í því eru gríðarleg tækifæri og við munum vinna það áfram með Rannís, öðrum ráðuneytum sem og í því frumvarpi sem kemur hér fyrir þingið.