fjárlög 2025.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Hér hefur farið fram umræða sem m.a. hefur snúist um mikilvægi þess að Ísland fjárfesti í mannauði inn í framtíðina, þá sérstaklega á sviði ýmiss konar raunvísinda. Mig langar til að beina spurningu til hæstv. ráðherra um launaþróun þessa hóps frá því um aldamót sem bæði úttektir BHM og Hagfræðistofnunar sýna að hafa að raunvirði nokkurn veginn staðið í stað undangengin 20 ár. Það hlýtur að vera nokkurt áhyggjuefni að þessi hvati hverfi. Þegar ungt fólk tekur ákvarðanir um hvernig það ráðstafar tíma sínum, tekur tillit til þess kostnaðar sem fylgir því að koma upp fjölskyldu og heimili, þá skipta þau ár sem varið er í skóla töluvert miklu máli hvað varðar ævitekjur, sérstaklega af því að þau liggja jú framarlega á ævinni og til viðbótar koma síðan námslánaskuldir sem rýra ráðstöfunartekjur inn í framtíðina. Það blasir við að þessar tilraunir, sem ég tel að séu fullkomlega réttar, til að auka framboð á vinnuafli inni í þessar greinar og mennta íslenska þjóð til að skapa meiri verðmæti eru alls lofs verðar en gætu orðið til lítils ef launahvatinn er ekki til staðar. Ég geri mér grein fyrir því að ákvörðun um þá þróun er ekki á valdsviði hæstv. ráðherra en ég vil gjarnan fá hennar sjónarmið um hvaða sýn hún hefur á það hvernig við getum snúið þessari þróun við.