155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:57]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg í umræðuna. Ég er að sjálfsögðu fylgjandi því að menntun sé metin til launa og það þarf að vera hvati fyrir fólk að leggja á sig og sækja sér aukna menntun sem þörf er á í samfélaginu eða þá menntun sem það kýs og ég held að við þessu sé engin ein lausn, annars væri líklega búið að finna hana. Áherslan í umræðum um kjarasamninga hefur oft verið á krónutöluhækkanir. Það hefur auðvitað gert það að verkum að jöfnuður í launum hefur aukist o.s.frv. Það sem er að gerast líka með uppbyggingu nýrra stoða í atvinnulífinu er að það eru að verða til fjölbreyttari störf á Íslandi, betur launuð störf líka, fleiri vel launuð störf fyrir háskólamenntaða sérfræðinga sem eru gríðarlega spennandi og þar sem er samkeppni um fólk um allan heim og gríðarleg tækifæri til að gera betur og stækka hér á landi ef við erum að mennta fólk í þær sérgreinar sem þörf er á víða í samfélaginu. Þannig að ég þarf að fá að svara hv. þingmanni með þessum hætti.

Aftur á móti má nefna afsláttinn sem við veitum, skattafslátt sérfræðinga til að koma heim, við erum að reyna að sækja íslenska háskólamenntaða sérfræðinga sem eru víða um heim og veita þeim skattafslátt til að koma til baka til Íslands. Í því felst auðvitað talsverð kjarabót og þar er verið að taka sérstaka ákvörðun um að veita skattafslátt fyrir háskólamenntað fólk sem hefur ekki snúið heim úr námi. Ég tel að þessi hvati sé góðra gjalda verður og við þurfum kannski að gera enn meira af slíku. Síðan má kannski nefna skattafsláttinn við endurgreiðslu vegna rannsókna og þróunar, það snýst auðvitað um skattafslátt starfa sem krefjast háskólamenntunar þar sem er verið að styðja fyrirtæki og þau geta þá borgað þeim sérfræðingum hærri laun af því að þau fá þennan skattafslátt. Þetta eru aðgerðir sem eru í gangi og ýta undir þennan hóp. En síðan verðum við að geta tekið umræðuna um hvernig við ætlum að meta menntun til launa og að það sé þess virði að sitja í háskólanámi.