fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég myndi samt hafa áhyggjur af því að í alþjóðavæddum heimi sé viss hætta á því að áhersla á menntun í STEM-greinum á Íslandi sem ekki skilar sér í hærri launum eða hærri ævitekjum muni leiða til þess að við förum að framleiða sérfræðinga fyrir heiminn frekar en að við séum að framleiða þá fyrir íslenskt samfélag inn í framtíðina. Það er nefnilega þannig að ófaglegt vinnuafl sækir hingað í stórum stíl af því að landamæri eru ekki lengur hindrun í alþjóðavæddum heimi og það sama á við um íslenska sérfræðinga og framtíðarsýn þeirra á það hvar þeir velja að stofna sína fjölskyldu og skapa sín verðmæti. Að meta menntun til launa er að mínu mati ákveðinn misskilningur. Á endanum snýst þetta um framboð menntaðs starfsfólks og eftirspurn eftir menntuðu starfsfólki og ég hygg að vandamálið liggi í því að þær atvinnugreinar (Forseti hringir.) sem hafa tækifæri til að nýta sér vel menntað starfsfólk til að skapa verðmæti eigi erfitt uppdráttar á Íslandi og ég myndi gjarnan vilja heyra álit ráðherrans á því hvernig því mætti breyta.