fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa umræðu. Við höfum verið að ýta undir samkeppnishæfni Íslands þegar kemur að því að reka fyrirtæki og sér í lagi nýsköpunarfyrirtæki á síðustu árum. Við stöndum orðið mjög vel þegar kemur að samkeppnishæfni þjóðarinnar í að reka hér fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði og ég held að í því felist gríðarleg tækifæri. Við sjáum fólksfjölgunina sem er að verða á Íslandi, fólk sækir hér í lífskjör og lífsgæði og það er augljóst að við stöndum framarlega þegar kemur að samanburði við önnur lönd. Ég veit að samkeppnin er alþjóðleg um þessa sérfræðinga og það er áskorun að gæta að því að þeir sjái hag sinn í að starfa hér. Þá þurfum við líka að geta tekið umræðuna um skatta. Hér eru skattar mjög háir. Við erum með hátekjuskatt. Við erum með háa skatta þegar við berum okkur saman við önnur lönd og þegar við skoðum ráðstöfunartekjur fólks eftir skatta miðað við önnur lönd þá erum við að taka meira af hámenntuðum og háskólamenntuðum sérfræðingum en þau lönd sem þeir bera saman, þ.e. til að vinna hjá. Þannig að þetta verður alltaf að setja í samhengi við þá áherslu (Forseti hringir.) sem hefur verið á að hækka lægstu laun og hvernig við ætlum áfram að byggja upp samkeppnishæft samfélag þar sem við ýtum undir jöfn tækifæri og verðmætasköpun á grundvelli nýrra greina.