fjárlög 2025.
Frú forseti. Mig langar að halda áfram umræðunni um STEM-greinarnar svokölluðu þó að ég nálgist það mögulega úr annarri átt en hv. þm. Daði Már Kristófersson. Ég held nefnilega að það skipti máli, sem hefur verið gert á síðustu árum, að styðja við þessar greinar og hvetja fólk til að taka þátt í mennta sig á þeim sviðum sem tækniáskoranir framtíðarinnar kalla á en ég óttast að á sama tíma þá höfum við kannski veikt greinarnar sem þarf að styrkja til að takast á við samfélagsáskoranirnar sem fylgja þessu. Þegar ég er farinn að sjá þessa stafarunu sem er núna orðin það löng að hún heitir STEAM þá er ég nánast farinn að lesa út úr því að það standi hérna „allt nema hug- og félagsvísindi“. Það liggur við að búið sé að taka utan um allt háskólastigið nema einmitt þær greinar sem við þurfum til að skilja heiminn, skilja siðferði, skilja hvernig við menntum börnin okkar. Við þurfum jú klára verkfræðinga og flinka stærðfræðinga en við þurfum líka góða kennara. Við þurfum líka fólk sem hefur tök á tungumálinu og getur skrifað spennandi bækur sem fá börnin okkar til þess að standa sig betur í lestri, vegna þess að slæmur árangur í lestri er — ég held að stór hluti af því sé bara áfellisdómur yfir framboði skemmtilegs lesefnis. Við þekkjum það öll sem höfum umgengist unga lestrarhesta að þau eru mjög fljót að spæna sig í gegnum allt bókasafnið, allt sem er nógu nútímalegt og skemmtilegt til að fanga ímyndunaraflið. Þannig að mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort að við þurfum að breikka þessa umræðu aðeins, hvort við þurfum ekki að vanda okkur að ræða ekki svo mikið um STEM-greinarnar að það fari að hafa neikvæð áhrif á áherslur háskólastigsins. Það þarf ekki nein lagaboð eða (Forseti hringir.) ordrur frá ráðuneytinu til að rektorar fari að heyra hvað er gerast hjá þeim sem móta stefnuna (Forseti hringir.) og hugsa: Já, kannski eigum við bara aðeins að rifa seglin í þessum hug- og félagsvísindum sem er aldrei verið að tala um.