fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra svarið og spyrja hana hér að einhverju allt öðru í minni seinni spurningu — ja, ekki endilega allt öðru heldur því sem var verið að ræða hér í fyrri lotu varðandi þann mannauð sem hefur flust til landsins en fær ekki að njóta allra þeirra tækifæra sem hann gæti. Mig langar nefnilega að spyrja um raunfærnimat og það hvernig sé hægt að nálgast það verkefni, hvað á ég að segja, með dálítið opnari hug en oft vill verða. Það er nefnilega svo hætt við að háskólarnir líti á raunfærnimat sem verkfæri til að meta hvort þú uppfyllir nákvæmlega eitthvað sambærilegt og að hafa gengið í gegnum íslenskan framhaldsskóla, að þegar reynsla þín úr öðru landi er metin þá þurfir þú að standast nákvæmlega sömu kröfur til þess að eiga erindi inn í íslenskan háskóla. Ég held að þetta útiloki allt of stóran hluta þeirra innflytjenda sem hingað leita (Forseti hringir.) sem þrátt fyrir að uppfylla ekki nákvæmlega sömu formskilyrði gætu hæglega stokkið beint inn í íslenskan háskóla og sótt sér þar menntun. Það er nefnilega óraunhæf (Forseti hringir.) og ég leyfi mér að segja ósanngjörn krafa bara á fertugt fólk sem flytur til landsins að það þurfi fyrst að sitja eitt, tvö ár (Forseti hringir.) í einhverri háskólabrú áður en það getur menntað sig upp úr láglaunastarfinu sem það er búið að sinna hér í einhver ár.