fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og tek hjartanlega undir með honum um mikilvægi þess að viðurkenna menntun og meta hana með réttum hætti og að við þurfum ekki alltaf að uppfylla nákvæmlega það sama og við gerum kröfur um til stúdentsprófs. Eitt fyrsta frumvarpið mitt hér sem þingmaður var að breyta lögum um háskóla svo að það væri ekki einungis stúdentspróf. Við höfum verið að styðja háskólana til að innleiða betur raunfærnimat með fjölbreyttari hætti til að auka skilvirknina við það mat og tryggja að við séum að meta nám frá erlendum skólum með fjölbreyttari hætti til starfsréttinda sem og að meta færni og reynslu innflytjenda til háskólanáms og við höfum verið að koma á miðlægri umsóknargátt að þessu leyti. Við höfum verið að styðja ENIC/NARIC og flytja umsýslu og verkið þangað varðandi viðurkenningu til starfa og við studdum sérstaklega alla háskólana til samstarfs um að geta tekið betri ákvarðanir (Forseti hringir.) um raunfærnimat og vonandi þá í takt við það sem hv. þingmaður segir, (Forseti hringir.) sem og kannski líka til styttingar náms. Ég held að stundum þurfir þú bara að bæta eitthvað örlítið við þig en ekki taka allt námið í heild sinni.