fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2025. Ég hef reynt að fylgjast með umræðunni sem hefur verið býsna ágæt en fjárlögin byggjast, eins og við þekkjum hér í salnum, á samþykktri fjármálaáætlun og fyrirliggjandi fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og þeim markmiðum sem þar koma fram. Við þessa umræðu hefur komið mjög glöggt fram að ytri áhrifaþættir hafa haft umtalsverð áhrif á efnahagsþróun og svo óhjákvæmileg viðbrögð ríkisstjórnar og Alþingis, og áhrif þar af leiðandi á ríkisfjármálin. Við erum kannski minnt reglubundið á að viðnámsþróttur og styrkur ríkissjóðs skiptir sköpum og við þurfum ávallt að hafa það í huga til að geta tekist á við óvænt áföll samhliða því að verja helstu málefnasvið, verja velferðina og heilbrigðiskerfið, af því að ég ætla að tala fyrir þeim málefnasviðum í þessum hluta umræðunnar, virðulegi forseti.
Varðandi þessa stöðu heilt yfir þá er ýmislegt jákvætt. Það er iðulega talað um þrjú efnahagsleg markmið þegar rætt er um hagstjórn. Það er full atvinna, aukin verðmætasköpun í nafni hagvaxtar og verðstöðugleiki. Tvö af þessum þremur hafa gengið eftir, hér er full atvinna og hér er mikil verðmætasköpun, kannski helst til mikil spenna þannig að það er ekki jafn hagvöxtur. Hann hefur verið mjög mikill og uppsveifla í kjölfar Covid þannig að spennan er mikil og það hefur komið niður á verðstöðugleika eins og kemur mjög vel fram í þessari umræðu. Þessi fjárlög bera þetta með sér en hér vil ég meina að við séum að verja velferðarkerfið.
Heilbrigðismálin eru venju samkvæmt umfangsmesti útgjaldaliður ríkisstjórnarinnar og ríkissjóðs í frumvarpinu og um 31% af rammasettum útgjöldum, 27% af heildarútgjöldum og nema nú tæplega 414 milljörðum, hafa nánast tvöfaldast á starfstíma þessarar hæstv. ríkisstjórnar. Í frumvarpinu, á bls. 98, er þetta tekið ágætlega saman, framlögin aukast um 10,4 milljarða á milli ára á föstu verðlagi eða sem nemur um 3%. Miðað við öldrun og fjölgun þá heldur það takti, fjárveitingar til heilbrigðisstofnana og sjúkratrygginga verða auknar vegna fjölgunar og öldrunar og aukið fjármagn verður sett í rekstur nýrra hjúkrunarrýma og framlög vegna lyfja og hjálpartækja aukast um 1,3 milljarða og áframhaldandi kraftur verður settur í byggingu nýs Landspítala. Hæstv. ríkisstjórn hefur lagt sig fram um að tryggja framgang þess verkefnis og verður 18,4 milljörðum varið til verkefnisins á næstkomandi ári. Okkur hefur fjölgað hlutfallslega mjög hratt á liðnum árum, um u.þ.b. 10% á síðastliðnum fimm árum og til merkis um öflugt heilbrigðiskerfi þá tekur þetta í en samhliða er hlutfallslega hratt vaxandi öldrun. Lífslíkur við fæðingu eru oft notaðar sem mælikvarði á gæði heilbrigðisþjónustunnar en hér á landi eru þær með þeim hæstu í heimi, um 83 ár. Það blasir við að öldrun þjóðarinnar kallar á aukna þjónustu og í þessu frumvarpi eru fjárveitingar til heilbrigðisstofnana og sjúkratrygginga auknar um liðlega 2% vegna þessara lýðfræðilegu þátta.
Þá vil ég minnast hér, hæstv. forseti, á aukna þjónustutengda fjármögnun en það fyrirkomulag hefur þegar aukið hvata og haft jákvæð áhrif á starfsemi og rekstur Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri og styður jafnframt við áherslur stjórnvalda um hagkvæma nýtingu fjármuna, gagnsæi og aukna skilvirkni. Í tíð þessarar hæstv. ríkisstjórnar hafa fjárveitingar til heilbrigðismála aukist um 31% á föstu verðlagi frá árinu 2018, tvöfaldast í krónum talið miðað við hvert ár.
Ég hlakka til samtalsins hér í framhaldinu, hæstv. forseti, og lýk máli mínu.