fjárlög 2025.
Frú forseti. Í tíð hæstv. heilbrigðisráðherra hefur heilbrigðisþjónustu verið útvistað til einkaaðila og rekstur grunnþjónustu líkt og heilsugæslu boðinn út. Þróun í þessa átt hefur átt sér stað hér á landi undanfarin ár. Það er einmitt vegna þessarar þróunar, og viðvörunarbjallna sem hringja vegna stöðunnar í Svíþjóð í þessum efnum, sem nokkrir áhugasamir einstaklingar um stefnumörkun í íslenska heilbrigðiskerfinu tóku sig til og þýddu ritið Jafnrétti í heilbrigðisþjónustu, aðgerðaáætlun eftir sænsku sérfræðingana Göran Dahlgren og Lisu Pelling. Þau voru einmitt á málþingi í Eddu í gær þar sem við vorum bæði, ég og hæstv. heilbrigðisráðherra.
Undanfarna þrjá áratugi hefur sænska velferðarkerfið tekið miklum breytingum til hins verra fyrir aldraða, öryrkja, mikið veika sjúklinga og þá sem minna mega sín. Einkarekstur hefur færst þar í aukana og hagnaðardrifinni heilbrigðisþjónustu vaxið fiskur um hrygg. Niðurstöður sænsku sérfræðinganna eru afdráttarlausar um að einkarekin heilbrigðisþjónusta sé dýrari og óhagkvæmari en heilbrigðisþjónusta rekin af opinberum aðilum. Einkarekstur auki á mismunun og komi sérstaklega illa við lágtekjufólk. Samkvæmt könnunum telur helmingur sænsku þjóðarinnar að mismunað sé innan almannaþjónustunnar. Jafnt aðgengi óháð efnahag og búsetu sé ekki lengur við lýði og tækifærum til að borga sig fram fyrir í röðinni fjölgi. Ýmis einkenni sem þau nefna eiga við hér á landi, svo sem hækkun á álagningu ef læknar fá greitt fyrir hvert viðvik og greiðsluþátttaka einstaklinga hjá sérgreinalæknum í einkarekstri. Möguleikum fjölgar einnig hér á landi til að borga sig út af biðlistum sem eru í opinbera kerfinu.
Ég vil spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort hann hyggist taka varnaðarorð Dahlgrens og Pelling til sín og nýta aðgerðaáætlunina um jafnrétti í heilbrigðisþjónustu við stefnumörkun í heilbrigðismálum.