fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir að koma inn á þennan þátt. Þetta er mjög stór heilbrigðispólitísk spurning, en líka flokkspólitísk. Þetta er afgerandi þáttur í ákvarðanatöku til framtíðar um það hvernig við viljum sjá heilbrigðiskerfið okkar þróast og takast á við þær áskoranir sem blasa við okkur, auðvitað aðallega í mönnun og fjármögnun, hvaða þætti við notum. Nú er það svo að við erum með blandað kerfi hérna. Og ég tek undir hvert orð um að jafnrétti í heilbrigðisþjónustu er mjög mikilvægt. Kjarninn í heilbrigðisstefnunni til 2030 er jafnt aðgengi óháð efnahag. Það er í mínum huga kverið sem við vinnum eftir og það er það sem þjóðin hefur almennt samþykkt að við eigum að vinna að. Við erum með blandað kerfi og hér hefur þróast í áratugi sjálfstætt starfandi hluti í þessu stóra þjónustuafhendingarkerfi okkar. Það er einn munur á okkar kerfi sem kom fram á þessari prýðisráðstefnu í gær og er mjög athyglisvert. Þar var stóru spurningunum varpað fram og borið saman við sænska kerfið. Við eigum auðvitað að læra af þessu öllum saman. En munurinn er sá að hér erum við enn einvörðungu með opinberar tryggingar og stýrum lögum samkvæmt öllum þjónustuinnkaupum í gegnum opinberar tryggingar á meðan einkatryggingar hafa þróast í Svíþjóð. Svo verðum við að taka tillit til þess að þar er meira gert í gegnum sveitarfélög og sýslur heldur en kannski hér, en við erum með heilbrigðisumdæmi.
Í grunninn er ég sammála hv. þingmanni um þessa kjarnaspurningu, (Forseti hringir.) þ.e. að jafnt aðgengi óháð efnahag er algjört lykilatriði.