fjárlög 2025.
Frú forseti. Jafnt aðgengi óháð efnahag, segir hæstv. heilbrigðisráðherra, og ég er sannarlega sammála því að svo ætti að vera. En ég vil þá rifja upp með honum stöðuna sem var hér í samningsleysi sérgreinalækna, sem varði í fjögur og hálft ár. Þar skapaðist sannarlega það ástand að ekki var jafnt aðgengi óháð efnahag hér á landi. Það er hægt að rifja upp ýmislegt sem á gekk á þeim tíma en þar var langveikt fólk, efnaminna fólk, sem frestaði því að fara til læknis vegna þess að það þurfti að borga tugi þúsunda á milli — 50.000 kr. aukalega fyrir ristilspeglun, svo að dæmi séu tekin. Það var ástand hér á landi sem sannarlega var ekki jafnt aðgengi óháð efnahag. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvað hann sé að gera í breytingum á lögum um sjúkratryggingar sem dæmi til að koma í veg fyrir að þessi staða kom upp að nýju næst þegar samningar verða lausir á þessu sviði.