fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka einmitt þetta stóra dæmi um samning við þennan sjálfstætt starfandi sérgreinalæknahluta — sem hefur þróast með þeim hætti og við köllum annað stig heilbrigðisþjónustu eins og hún er flokkuð í heilbrigðisstefnu. Það er alveg hárrétt að þar var stefnan því miður ekki að virka eins og hún á að gera, óháð efnahag eða óháð búsetu og annað, vegna þess að það var samningslaust. Þá gliðnaði á milli af því að lögin eru þannig að það má rukka aukagjöld og þeir tekjuminni bera skarðan hlut frá borði í því. Það þarf alltaf tvo til að semja. Þess vegna lagði ég óhemjumikið á mig og starfsfólk ráðuneytisins og Sjúkratrygginga, sem við erum að efla, og það er í stjórnarsáttmála, sem kostnaðargreiðanda og samningsaðila vegna þess að við viljum semja lögum samkvæmt í gegnum Sjúkratryggingar. Það náðist góður samningur (Forseti hringir.) að mínu viti en svo er það á ábyrgð okkar allra til framtíðar að horfa á stefnuna og aðgengið, óháð efnahag, óháð búsetu, og ná samningum og varanleika og fyrirsjáanleika fyrir alla þjónustuveitendur en ekki síst þá sem þiggja þjónustuna.