155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsögu hér áðan. Mig langar að spyrja um fjárheimildir til reksturs og leigu nýrra hjúkrunarheimila. Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram í greinargerð að þær séu auknar um 1,3 milljarða kr. og síðan sér maður á málefnasviðinu sjálfu, á bls. 308, að talað er um að helstu breytingar fjárheimilda málaflokksins séu eftirtaldar: A-liður, fjárheimild til málaflokksins aukin um 820 millj. kr. til reksturs nýrra hjúkrunarheimila og síðan í c-lið er fjallað um auknar fjárheimildir til málaflokksins, 716,4 millj. kr., til húsaleigu á fasteignum sem nýta á í sólarhringshjúkrunarþjónustu. Ég sé ekki að rúmar 800 milljónir plús 700 milljónir séu 1,3 milljarðar heldur 1,5. Er það ekki hærri talan sem ræður hérna? Það væri gott að fá að vita um það. Og varðandi reksturinn, er ekki hluti af þessum 820 milljónum örugglega að fara til minni eða mjög lítilla hjúkrunarheimila á landsbyggðinni í svokallað smæðarálag? Mun ekki hæstv. heilbrigðisráðherra tryggja það að þessi allra minnstu hjúkrunarheimili sem eru jafnvel með niður undir tíu vistmenn verði ekki lögð niður? Þetta eru mikilvægir atvinnuveitendur og mikilvægar stofnanir í litlum byggðarlögum. Verður ekki staðinn vörður um þær? Þessi heimili óttast mjög mikið að ef það kemur til sameininga og annað slíkt þá verði þau lögð niður.

Einnig kemur fram að fjárheimild til málaflokksins til framkvæmdaáætlunar í uppbyggingu hjúkrunarrýma á að minnka um 500 milljónir. Af hverju á að minnka þessa tölu um hálfan milljarð til uppbyggingar nýrra rýma? Ég hefði haldið að við þyrftum að spýta í og setja aukið fjármagn þar en ekki lækka heimildirnar. (Forseti hringir.) Ég læt þetta duga í bili.