155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir spurningarnar sem snúa að hjúkrunarheimilunum, þær voru þó nokkrar. Jú, við höfum passað upp á smærri heimilin og við höfum verið með ekki bara einfalt smæðarálag heldur tvöfalt víða þar sem stærðarhagkvæmni kemur inn í þennan rekstur og við höfum líka verið í fjölmörgum verkefnum, ég get nefnt núna í Reykjanesbæ, í Mosfellsbæ, á Akureyri, þar sem verið er að stækka áður fyrirhugaðar framkvæmdir og fjölga rýmum einmitt til að styðja við þessa hagkvæmni í stærri einingum en líka vegna þess að það er hreinlega þörf á fleiri rýmum. Við erum sannarlega að bæta í í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þess ber þó að geta að það hafa því miður orðið tafir af ýmiss konar ástæðum í gegnum tíðina í uppbyggingunni. Ríkisstjórnin boðaði mjög kröftugt átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila ásamt stóru samþættingarverkefni, Gott að eldast. Þetta verður að vinna samhliða. Við þurfum að styrkja alla þjónustukeðjuna, heimaþjónustuna, virkni, dagdvalir og endurhæfingu og það höfum við gert og verið að vinna það undir hatti Gott að eldast. En við erum að auka framlögin í hjúkrunarheimilin, það liggur fyrir í frumvarpinu, ég bara gleymdi að taka með mér frumvarpið upp í pontu upp á töluna, ég skal sækja það í seinna andsvari. Við erum líka að reyna að fara nýja leið til að draga úr þessu fjárfestingarumfangi sem mörg smærri sveitarfélög hreinlega ráða ekki við, sem útskýrir til að mynda tafir á Húsavík, þannig að við aukum jafnræði milli sveitarfélaga. (Forseti hringir.) Það er ekki í neinu tilviki sem það hefur komið upp að við höfum lagt niður smærri hjúkrunarheimili. (Forseti hringir.) Núna síðast var HSA að taka yfir hjúkrunarrými á Vopnafirði og er þá komin með öll hjúkrunarrýmin í rekstur og þar eru tíu hjúkrunarrými sem dæmi.