155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:36]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Samningurinn við sérgreinalækna er um margt tímamótasamningur þegar kemur að því að styðja við landsbyggðina og einmitt þennan þátt sem hv. þingmaður kemur inn á, bæði er varðar nýsköpun en líka ný verkefni sem koma inn í svokallaða sérgreinaskrá. Það eru fjölmargir möguleikar sem þegar eru komnir af stað varðandi nýsköpun. Ég nefni samninga um augnlækningar, bæði fyrir austan og á Vestfjörðum. Ég get nefnt að við erum að vinna með sérgreinar í samræmi við 27. og 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, 27. gr. um tilteknar sérgreinar, 28. gr. er svæðisbundin. Við höfum þegar klárað vinnu í heilbrigðisráðuneytinu, Byggðastofnun var að klára sína vinnu, við erum komin með beiðni Skagastrandar til að mynda á þessu sviði, að styrkja læknamönnun þar og beiðnin kemur þá frá sveitarfélaginu (Forseti hringir.) og svo í samvinnu við háskóla- og nýsköpunarráðherra þá getum við farið í ívilnanir (Forseti hringir.) í gegnum Menntasjóð námsmanna, til að mynda fyrir tilteknar stéttir eða tiltekin svæði.