fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hans framsögu. Ég veit að við ráðherra deilum þeirri skoðun að nú er mjög mikilvægt að styðja við hjöðnun verðbólgu og veita aðhald til þess í ríkisfjármálum og þar skiptir forgangsröðun útgjalda öllu máli.
Talandi um forgangsröðun útgjalda langar mig að nefna atriði sem hefur um nokkurt skeið staðið hjarta mínu næst og ég hef lagt fram nokkur frumvörp um, sem er að við hér reynum að aðstoða fólk sem á í vandræðum með að eignast börn. Einn angi af þeim vandræðum er kostnaðarliður þeirra mörgu meðferða sem fólk þarf því miður oft að standa í. Ég hef lagt fram frumvarp sem kveður einfaldlega á um það að við gefum í niðurgreiðslu á þeim fyrstu fjórum meðferðum sem ríkið tekur þátt í að niðurgreiða, gerum það með mun hressilegri hætti. Í frumvarpinu býð ég upp á ákveðna lausn sem í felst lítill eða jafnvel enginn útgjaldaauki fyrir ríkissjóð, sem er að hætta að fullu niðurgreiðslu valkvæðra ófrjósemisaðgerða, sem eru í daglegu tali kallaðar herraklippingar, sem karlmenn og eftir atvikum pör og fjölskyldur taka ákvörðun um og er algjörlega sjálfsagt mál að fólk kjósi að gera í sínu lífi. En fyrir mitt leyti er sanngirnisatriði að ríkið noti sína fjármuni í að hjálpa fólki að eignast börn í staðinn fyrir að niðurgreiða að fullu þessar valkvæðu aðgerðir. Mig langar hreinlega að spyrja hvort hæstv. ráðherra vilji taka þessa tillögu til skoðunar.