fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir góðar spurningar og vissulega stórar. Það er einfalt að svara fyrstu spurningunni. Hún snýr bara að tölum og er í raunkrónum í fjárlögum hvers árs. Ég nefndi það tvöföldun, það er um 90% og er að fara í 414 milljarða og það er með öllu, fjárfestingum þar með talið. Þannig að svarið við því er já.
Eins og hv. þingmaður kom inn á er framkvæmdin við Hringbraut bæði fjárfrek og stór í öllu samhengi en hún er líka brýn og við þurfum að reyna að forðast allar tafir á því sviði, bæði þegar kemur að aðbúnaði og þjónustu við okkar starfsfólk og sjúklinga, aðbúnaði í afhendingu á þjónustunni. Einnig eru tafir þegar kemur að byggingarframkvæmdum bara dýrar. Það er þekkt þegar verið er að reisa jafn stórar byggingar og spítalar eru og kemur fram í öllum skýrslum ráðgjafa um það verkefni.
Ég ætla að segja það hér og við ræddum það oft þegar ég starfaði í hv. fjárlaganefnd að þó að við séum hér með fjárlagafrumvarp sem er mikið að umfangi er því miður allt of lítið hægt að koma inn á einstök verkefni sem verið er að vinna að. Við erum auðvitað mjög uggandi um þá þróun sem við erum að sjá í ofbeldi og uppsöfnuðum vanda þegar kemur að geðheilsutengdum málum. Ég get nefnt fjölmörg verkefni og ég skal reyna að ryðja þeim út úr mér á þessari mínútu sem ég hef í seinna andsvari.