fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Það væri ágætt að heyra um eitthvað af þessum verkefnum vegna þess að ég fæ ekki séð að þetta sé í þeim forgangi sem mér finnst að það eigi að vera. Þarna er ég líka að vísa í ópíóíðavandann sem Ríkisendurskoðun gerði skýrslu um.
En að seinni spurningu minni og hún snýr að því hvað verið er að gera til að bregðast við því sem ég myndi kalla að sé undirliggjandi mönnunarvandi og líka plássvandi þegar kemur að beitingu nauðungar í heilbrigðiskerfinu. Beiting nauðungar er ekki bara notuð í geðheilbrigðiskerfinu þegar fólk er nauðungarvistað eða vistað inni á viðeigandi stofnun heldur einnig þegar kemur að t.d. öldruðum sem eru í hjúkrunarrýmum og eru jafnvel læst inni eða þaðan af verra, komast jafnvel ekki undir bert loft ef sjúkdómseinkenni eru með þeim hætti að þau geta jafnvel ógnað sjálfum sér eða öðrum. Það er búið að vera viðvarandi ástand á Íslandi lengi að fólk sem hefur ekkert sér til saka unnið annað en að veikjast af t.d. alzheimer eða öðrum álíka sjúkdómum (Forseti hringir.) býr við dagleg mannréttindabrot á Íslandi, virðulegi forseti. Það er eitthvað sem maður getur ekki látið viðgangast til lengri tíma. Við getum ekki sagt: Þetta kemur einhvern tímann. Hvenær kemur þetta? Þetta verður að koma strax.