155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:51]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Varðandi uggvænlega þróun þegar kemur að ofbeldi og viðbrögðum í geðheilbrigðismálum og við ópíóíðavandanum þá vil ég vísa í skýrslu sem heilbrigðisráðuneytið gaf út með tillögum sem við höfum þegar farið í, sem eru skimun fyrir heimilisofbeldi, vegna þess að við vitum að ofbeldi leiðir af sér ofbeldi. Þetta er auðvitað líka tengt þessu máli sem hv. þingmaður kom inn á þegar kemur að nauðung. Skýrslan bar heitið Börn eru ekki litlir fullorðnir. Við erum líka að þróa ofbeldismóttöku með Landspítalanum í ætt við kynferðisofbeldismóttöku sem hefur gengið mjög vel í góðri samvinnu við lögregluyfirvöld og sérfræðinga og alla hlutaðeigandi, samræmt verklag á landsvísu.

Varðandi ópíóíðavandann þá erum við búin að opna neyslurými og við erum búin að auka viðhaldsmeðferð (Forseti hringir.) í samningum við SÁÁ, við erum búin að fjölga rýmum í samvinnu við Krýsuvík og auka framlög til Hlaðgerðarkots (Forseti hringir.) og við erum á fjölmörgum sviðum varðandi ópíóíðavandann þegar búin að fara í fjölmörg skaðaminnkandi verkefni (Forseti hringir.) og innan skamms mun skaðaminnkunarstefna verða birt.