fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsöguna varðandi það málefnasvið sem að honum snýr í fjárlögum næsta árs. Það er gríðarlega margt jákvætt og mikilvægt að gerast í heilbrigðismálunum. Við sjáum nýjan Landspítala rjúka upp og erum örugglega flest farin að hlakka til þess þegar hann verður tekinn í notkun. Það er verið að auka framlög til heilbrigðisþjónustunnar, sem er gott og mikilvægt. Ég ætla að fagna því að í frumvarpinu er lagt til að leggja til fjármuni til að lækka greiðsluþátttöku í tannlækningum hjá Sjúkratryggingum og ýmislegt jákvætt mætti tína til. Ég verð að viðurkenna að ég hef áhyggjur af því að verið sé að hægja á því að draga úr greiðsluþátttöku almennings vegna heilbrigðismála, en við vitum að þau sem eru tekjulægri eiga nú þegar mjög erfitt með að mæta heilbrigðiskostnaði. Ég vil því brýna heilbrigðisráðherra í þeim efnum. Það sem ég hef áhyggjur af, og er svolítið erfitt að lesa út úr fjárlagafrumvarpinu, er að sjá hversu miklar hreyfingar eru að verða úr hinu opinbera kerfi yfir í einkarekstur, til að mynda þegar kemur að því að stytta biðlista með fjölgun aðgerða sem eru framkvæmdar hér á landi, bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. (Forseti hringir.) Hér segir að þetta sé innan ramma en það segir okkur rosalega lítið um það hvaða stefnu heilbrigðiskerfið okkar er að taka.