155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:55]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir hennar innlegg í umræðum um heilbrigðismál og fyrir þær spurningar sem hv. þingmaður skildi eftir, sem ég tók aðeins fyrir í andsvörum við hv. þm. Oddnýju Harðardóttur. Þetta er risastórt mál. Við vorum að fylgjast með góðum fyrirlestri um jafnrétti í heilbrigðisþjónustu og við stöndum á miklum tímamótum. Okkur er að fjölga mjög mikið, við erum að eldast hlutfallslega mjög hratt og því fylgja miklar áskoranir. Kerfið okkar hefur fengið að þróast frekar en að við höfum verið pósitíft að breyta því. En við erum þó komin með heildstæða heilbrigðisstefnu þar sem kjarninn er jafnt aðgengi óháð efnahag og búsetu. Jafnréttið á þannig að speglast í þeim opinberu fjármunum sem almenn sátt ríkir um í þjóðfélaginu, þ.e. að við viljum fjármagna opinberlega félagslegt heilbrigðiskerfi. Þá er rétt að spyrja: Hvernig ætlum við að haga þessu í framtíðinni? Hvernig ætlum við að takast á við þetta samspil sem er svo óhjákvæmilegt milli heilsugæslu, sem við köllum fyrsta stig, sérgreinanna, sem við köllum annað stig, og er meira og minna í sjálfstæðum rekstri, og svo sjúkrahúsanna, sem bæði mennta fólkið okkar og gera eðli máls samkvæmt flóknustu aðgerðirnar? Þetta er alger kjarnaspurning og ég veit að þetta mun verða meira og meira í umræðum í sölum Alþingis þegar fram í sækir og við eigum eftir að ræða þetta frekar.