155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:58]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra í því að þetta eru kjarnaspurningar þegar kemur að heilbrigðisþjónustu í landinu. Ég og við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði höfum áhyggjur af því að það sé verið að auka hér mjög einkarekstur. Þar sem hæstv. ráðherra vísaði í frábært málþing sem við vorum á í gær, sem haldið var af ASÍ, BSRB og ÖBÍ, þá sýnir reynslan frá Svíþjóð að þetta dregur úr mætti opinbera kerfisins, aðgangur fyrir tekjumeiri og minna veika, sem þurfa að fara í einfaldari aðgerðir, verður meiri í gegnum einkareksturinn en eftir situr opinbera kerfið með minni fjármuni þar sem vinna þarf flóknu aðgerðirnar. Þetta bitnar á almenningi og þetta bitnar á samfélaginu. Þetta er risastórt mál sem mér finnst fullt tilefni til að ræða (Forseti hringir.) um leið og við ræðum fjárlög ársins vegna þess að þetta er partur af heildarstefnumótuninni.