155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:03]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir hennar fyrirspurn sem snýr að m.a. þeim áhyggjum sem umboðsmaður barna hefur tekið saman og sendi m.a. á þann sem hér stendur og ég veitti svör þá þegar og tók saman þessa stöðu. Fyrst vil ég byrja á því að nefna það sem hefur gengið mjög vel. Við settum viðbótarframlög, ekkert ýkja mikil, til BUGL og það var á þeim tíma tengt faraldrinum. En ég verð að segja að starfsfólk og stjórnendur BUGL sýndu okkur hvað er hægt að gera með breyttu skipulagi og þau tóku þá biðlista sem þá voru niður eiginlega bara á einu misseri þannig að það er hægt að vinna mjög vel. Þarna þarf líka mikið samspil við geðheilsuteymi og þau er m.a. hægt að nýta mjög vel. Ég vil meina að framlögin séu ekki hindrun í því að ná betri árangri.

Þá ætla ég að koma að því sem er í miður góðum málum og það verður bara að viðurkennast. Þrátt fyrir skipulagsbreytingar og að setja á stofn Geðheilsumiðstöð barna og svo ADHD-teymi fullorðinna og skilja á milli þá hafa biðlistarnir þarna aukist. Mér fannst vera ákveðnar þversagnir í þessu. Við erum að greina þetta mjög mikið og við erum með tvisvar, þrisvar sinnum fleiri í meðferðum, oftast er það lyfjameðferð, á þessu sviði en þrátt fyrir allt eru biðlistarnir að stækka mjög mikið og (Forseti hringir.) þetta er eiginlega þvert á það sem við sjáum þegar horft er til Norðurlandanna. Þarna erum við að vinna grænbókarvinnu (Forseti hringir.) og svo kom út ágætisrannsókn bara í gær þar sem eru vísbendingar um að við þurfum að skoða mjög vel aðra þætti, sem ég skal koma inn á, sem geta nýst. (Forseti hringir.) Ég get líka farið yfir þær tillögur sem við höfum verið með gagnvart börnum og geðheilsumálum almennt.