155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:06]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Fyrst skal ég viðurkenna að fjárframlög eru vitaskuld ekki svörin um allt. En þessi frétt er sláandi og það er vont og sárt, í samhengi hlutanna, í samhengi dagsins í dag, til þess að vita að þúsundir barna séu á biðlistum og ég veit að við viljum auðvitað öll gera betur hér. Mig langar til að nefna við hæstv. ráðherra — ég veit að hér er málaflokkur sem heyrir ekki beinlínis undir hann en þetta skarist þó allt saman — að það liggur fyrir fín skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Hér er sannarlega málaflokkur og málefnasvið sem hægt er að gera betur á og þarf að gera betur. Mig langar til að nefna að það var reynsla mín sem saksóknari áður en ég tók sæti á Alþingi að það var stundum dálítið sorglegt að sjá og upplifa það að það gat skipt máli þegar um var að ræða börn, tvö börn sem sannarlega bæði bjuggu við erfiðar og óbærilegar aðstæður, hvers eðlis vandinn var fyrir þá aðstoð sem þau fengu. (Forseti hringir.) Barn sem hafði búið við kynferðislegt ofbeldi fékk betri stuðning í kerfinu en barn sem bjó við vanrækslu og líkamlegt ofbeldi. (Forseti hringir.) Við sjáum þetta líka hvað varðar fötlun og hagsmuni barna sem eru með brotið bakland. Ég bið ráðherra um að hugleiða þetta og þessa skýrslu. Hér er hægt að gera betur.