155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:13]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir sín svör en ég ætla í seinni atrennu að víkka umræðuna aðeins út og spyrja almennt um heilsugæsluþjónustuna. Þar hefur staðan þyngst mjög á undanförnum árum eftir því sem heilsugæslan fær fleiri og flóknari verkefni í fangið án þess að þjónustan sé fjármögnuð almennilega og án þess að það takist að laða til starfa fólk með góð laun sem getur þá starfað við góðar starfsaðstæður. Starfsfólk hefur beinlínis hrökklast frá vegna álags, sérstaklega á síðustu tveimur árum, og staðan virðist hafa þyngst verulega eftir Covid. Ég sé í fjárlagafrumvarpinu að þar er gert ráð fyrir að framlög til heilsugæslunnar dragist saman um einhver hundruð milljóna á næsta ári og verði líka talsvert lægri heldur en þau voru í fyrra. (Forseti hringir.) Ég vil fá að heyra frá hæstv. ráðherra hvernig stendur á þessu og hvernig hann telur að unnt verði að efla heilsugæsluþjónustuna ef framlögin til þessarar þjónustu eiga að minnka (Forseti hringir.) a.m.k. tvö ár í röð.