155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:15]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir að taka hér upp málefni heilsugæslunnar. Varðandi heilsugæsluna þá er þetta fyrst og fremst fjárfestingarframlag sem er að hliðrast. Það er heilsugæslan á Akureyri, stöðin þar, það er hálfur milljarður. Þannig að rekstrarframlögin eru að aukast og 2023 þá jukum við framlögin varanlega um 2 milljarða inn í heilsugæsluna. Þannig að við höfum verið að reyna að auka það og það er mjög mikilvægt vegna þess að sérstaklega á helstu álagstímum þá er heilsugæslan mjög þanin getum við sagt, mikið álag á starfsfólki, en við höfum sett þessa fyrstu viðkomu samkvæmt heilbrigðisstefnunni á oddinn og heilbrigðisþingið núna verður tileinkað heilsugæslunni vegna þess að það mun skipta sköpum hér til framtíðar að efla þessa þjónustu gagnvart því (Forseti hringir.) að réttur sjúklingur á réttum stað, eins og það er orðað í stefnunni, vinni betur (Forseti hringir.) heldur en kannski við erum að upplifa á svona mestu álagstímunum í dag. Þannig að heilbrigðisþing er tileinkað heilsugæslunni (Forseti hringir.) sem dæmi um það hvað við leggjum mikla áherslu á þennan þátt þjónustunnar.