155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:16]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna frá 31. janúar 2022 kemur fram í 5. tölulið 6. gr., um heilbrigðisráðuneytið, að lýðheilsa og forvarnir, þar á meðal áfengis- og vímuvarnir, heyri undir hæstv. heilbrigðisráðherra. Þetta er skv. 15. gr. stjórnarskrárinnar um skiptingu starfa ráðherra sem forseti gerir og gerir það í forsetaúrskurði sínum.

Núna hafa borist fréttir af því að Hagkaup ætli að fara að hefja sölu áfengis í gegnum netið. Það eru kærur í gangi, fjögurra ára gömul mál, mál sem hafa verið til rannsóknar í fjögur ár hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og ekki er enn þá búið að ljúka rannsókn á. Þetta eru einföld sakamál og ég veit að ríkissaksóknari er búinn að biðja um það hver staðan á málunum er en þeim er ekki lokið enn þá. Ég veit að heilbrigðisráðherra er búinn að segja að þetta sé ólöglegt. Allir sem hafa kynnt sér málið vita að þetta er ólöglegt. Það stendur í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu og lögfræðiáliti að þetta sé ólöglegt. Ég held að það sé líka í áliti í dómsmálaráðuneytinu sem ég ætla að biðja um. Netsala á áfengi er smásala. Það er einkaleyfi ríkisins skv. 10. gr. áfengislaga. Áfengislög eru mikilvægasta lýðheilsulöggjöf landsins og það er ekki út af neinu sem við erum með þetta einkaleyfi eins og önnur Norðurlönd að Danmörku undanskilinni.

Spurningin er þessi: Hvernig ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra að axla ábyrgð samkvæmt forsetaúrskurði á lýðheilsu landsins og forvörnum, þar á meðal vegna áfengis- og vímuefna, þegar núna er búið að vera að brjóta lög í landinu, mikilvægustu lýðheilsulöggjöfina, áfengislögin? Það eru þungar refsingar við því, í ákvæðinu er sex ára fangelsi, upptaka alls hagnaðar og eigna sem koma af sölunni. Hvernig ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra að bregðast við þessari lögleysu? Núna er verið að auka enn þá í þegar stærsti smásöluaðili landsins í matvöru er að fara að hefja þessi lögbrot eins og enginn sé morgundagurinn. (Forseti hringir.) Ég minni á að áfengisgjald á að skila 26 milljörðum kr. á þessu ári.