fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir að taka þetta brýna mál hér upp. Þetta er risalýðheilsumál. Við getum alveg nefnt það sem svartan dag í gær þegar stór verslunarkeðja hóf netsölu. Talandi um samfélagslega ábyrgð. Ég er auðvitað þeirrar skoðunar eins og stefna og lög og markmiðsákvæði laga draga mjög skýrt fram að það er brýnt að verja einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins út frá lýðheilsusjónarmiðum. Það er enginn vafi í mínum huga hvernig lögin eru um þetta. Þessi lög gilda. Eins og hv. þingmaður nefndi þá heyrir lýðheilsa undir heilbrigðisráðherra en þessi lög heyra undir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Ég brást þannig við og hef þegar brugðist við fyrir þó nokkru með því að setja þetta í bréf og senda á hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og afrit á dómsmálaráðherra. Auðvitað ræðum við þessi mál en bara til að vekja athygli á því hvaða þýðingu þetta hefur fyrir lýðheilsu og hvar þetta liggur í lögum — hv. þingmaður spurði hvernig ætti að bregðast við og ég kalla bara eftir öllum kröftum. Samfélagið hefur brugðist mjög hart við. Allar heilbrigðisstéttir hafa beðið okkur um að taka á þessum málum, þetta bréf tók utan um það, öll foreldrasamtök sömuleiðis, sem eru auðvitað bara kjarninn og kyndilberar hins íslenska forvarnamódels í gegnum tíðina með þekktum árangri. Ég biðla líka til Alþingis og hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þannig að við förum öll saman í þetta því við verðum að fá úr þessu skorið. (Forseti hringir.) Það er þannig í lögum að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er einni heimilt að afhenda og selja áfengi.