fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svarið. Það stendur í 2. mgr. 18. gr. laga um meðferð sakamála að ríkissaksóknari, í samvinnu við lögreglu, skuli sjá til þess að þeir sem brjóta lög í landinu sæti lögmæltum viðurlögum. Það er ekki verið að gera í þessu máli. Brot á áfengislögum varðar sex ára fangelsi. Það er þung refsing. Annað líka í þessu er að skv. 19. gr. laga um meðferð sakamála þá hefur dómsmálaráðherra eftirlit með ákæruvaldinu og getur meira að segja óskað eftir gögnum í einstökum málum til að fá að vita um stöðu mála. Ég er búinn að reyna nú þegar í tveimur eða þremur skriflegum fyrirspurnum að fá upplýsingar um þetta eftirlit og það er alveg augljóst mál að pólitísk afstaða dómsmálaráðherra leiðir til þess að hann er ekki að sinna eftirlitshlutverki í þessum málum. Það er alveg kristaltært. Við búum í þingræðisríki og það að ríkissaksóknari og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu skuli voga sér að sjá til þess að það sé verið að brjóta lög í landinu, lög sem ekki er búið að breyta hér í þessari stofnun í þingræðisríki, er algjört hneyksli. Báðir aðilar eiga að segja af sér og væri dómsmálaráðherra með tögg í sér myndi hann áminna báða.(Forseti hringir.)
Ég spyr hæstv. heilbrigðisráðherra því nú ber hann ábyrgð á lýðheilsumálum í landinu: Hvernig ætlar hann að beita sér frekar til þess að sjá til þess að hann uppfylli skyldur sínar (Forseti hringir.) samkvæmt forsetaúrskurði og sjái til þess að þessi mikilvægustu lýðheilsulög í landinu verði virt? Það er ekki verið að gera það, ekki búið að gera það í fjögur ár. (Forseti hringir.) Þetta er algjört hneyksli í vestrænu lýðræðisríki. Það eru borgaraleg gildi í landinu, svo það liggi fyrir, að virða lög í landinu.