fjárlög 2025.
Forseti. Mig langar að lesa örstutt úr umsögn Landspítalans við fjármálaáætlun í vor en þar stendur, með leyfi forseta:
„Landspítali hefur síðustu ár skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu en vert er að hafa í huga að ákveðnum lykilþáttum starfseminnar hefur ekki verið sinnt sem skyldi.“
Það er ekki tíundað neitt frekar hvaða lykilþættir það eru. Það má rekja það í umsögninni að verið sé að vísa í t.d. viðhald húsnæðis, tækjakaup og svo má velta fyrir sér hversu vel Landspítali – háskólasjúkrahús nær að sinna háskólasjúkrahússhlutverki sínu, þ.e. því hlutverki að mennta næstu kynslóðir heilbrigðisstarfsmanna miðað við þörfina. Mig langar að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra þessarar einföldu spurningar: Eru fjárheimildirnar sem eru lagðar fram í þessu fjárlagafrumvarpi, samkvæmt bestu vitund ráðherra, nægilega miklar til þess að Landspítalinn eða aðrar heilbrigðisstofnanir fái nægt fjármagn til að sinna starfsemi sinni samkvæmt lögum, sinna lögbundnum verkefnum þannig að við munum ekki fá umsagnir þess efnis að ákveðnum lykilþáttum starfseminnar hafi nánast alveg þurft að sleppa?