155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:26]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir þessar spurningar. Fyrst vil ég segja að við höfum tekið upp ákveðið verklag varðandi fjármögnun spítalans. Það er orðið gríðarlegt umfang að hafa reglubundna yfirferð fjárlagaskrifstofu og spítalans á öllum þessum viðamiklu þáttum sem hv. þingmaður fór hér yfir. Hv. þingmaður nefnir auðvitað tæki. Við þekkjum alveg tæki, skurðþjarka og fleiri mjög mikilvæg tæki, sem hlaupa á bilinu 600.000 til 1 milljarður hvert tæki. Þetta er gríðarlegt umfang og við erum komin með reksturinn í kringum 100 milljarða og það er mikið að halda utan um. Á liðnum árum höfum við verið að setja aukinn kraft í að byggja upp vegna þess að margar byggingar, við getum bara sagt það hreint út, sem halda utan um ýmsa starfsemi, bráðamóttöku, legurými, göngudeildarþjónustu, ferilþjónustu — þetta er eiginlega við það að springa. Á helstu álagspunktum er það bara mjög erfitt. Þess vegna erum við að setja mjög mikinn kraft í að klára byggingar. Þetta þarf einhvern veginn allt að spila saman, líka tækjakosturinn. Það er einhver tími, fjögur til fimm ár, í það að við flytjum inn í nýjan meðferðarkjarna og við höfum lagt grunn að því sem við köllum brúarverkefni. Það er stækkun bygginga til að efla bæði legudeildir, fjölga legurýmum, stækka bráðamóttöku og (Forseti hringir.) efla göngudeildir á þessum tíma. Þar þurfum við að horfa inn í fjárfestingarframlög og tækjakaupin líka. (Forseti hringir.) Það er mikilvægt að stærstu tækin fari á rétta staði inn í nýjan spítala. En við getum ekki beðið með þetta. Þetta þarf að spila saman.