155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:30]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég ætla nú bara að umbera pirring hv. þingmanns. Hann veit það jafn vel og ég sem hér stend að verkefnið er viðamikið og flókið. Þegar við erum farin að ræða 100 milljarða umfang er svarið já við einfaldri spurningu eins og: Duga 100 milljarðar? En við vitum það báðir jafn vel að það fer eftir því hvað við erum að miða við í umfangi þjónustu. Spítalinn hefur staðið sig mjög vel í að halda sig innan fjárheimilda. Hann hefur sinnt grunnþjónustunni mjög vel og að því leyti er svarið við spurningunni já. Og að því leyti til hafa heilbrigðisstofnanir okkar staðið sig vel og sinna grunnþjónustunni mjög vel. Geta stofnanir sem eru að veita viðlíka þjónustu alltaf notað meira fjármagn? Já. (Gripið fram í.) — Ég svaraði spurningunni játandi. Það er nægjanlegt fjármagn til að sinna grunnþjónustu. En hv. þingmaður veit jafn vel og ég sem hér stend að í jafn viðamiklu verkefni, með 400 milljarða umfangi, verðum við að setja hlutina í samhengi við (Forseti hringir.) hvers konar þjónustu er um að ræða og hvaða gæðaviðmið.