155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:04]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég geri hér í stuttu máli grein fyrir þeim hluta fjárlagafrumvarps fyrir árið 2025 sem snýr að málefnasviðum sem undir mig heyra sem utanríkisráðherra. Það eru utanríkismál og alþjóðleg þróunarsamvinna. Til þeirra teljast annars vegar fjölþjóðlegt samstarf og samskipti við önnur ríki, öryggis- og varnarmál, utanríkisviðskipti, borgaraþjónusta og þjóðaréttur og hins vegar þróunarsamvinna og mannúðaraðstoð. Sú mynd sem blasir við okkur á alþjóðavettvangi í dag kallar á víðtæka hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar til varnar viðskiptahagsmunum og þeim gildum um mannréttindi og lýðræði sem við höfum í heiðri. Hún kallar sömuleiðis á framlag Íslands til velsældar og mannúðaraðstoðar og síðast en ekki síst til öryggis og friðar í heiminum. Þessar áherslur endurspeglast í forgangsröðun utanríkisþjónustunnar í verkefnum sínum og eins í þeim breytingum sem fjárlagafrumvarpið leggur til að verði á framlögum til hennar.

Gert er ráð fyrir vaxandi umfangi varnartengdra verkefna og efnahags- og mannúðaraðstoðar við Úkraínu á næsta ári. Það er mikilvægt að Ísland verði áfram trúverðugur samstarfsaðili í varnarmálum og leggi enn frekar sitt af mörkum til varna Íslands, Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóða. Áfram er hlúð að EES-samstarfinu, sem er mikilvægasti samvinnuvettvangur Íslands á sviði utanríkisviðskipta og veitir um leið fótfestu á óróatímum í alþjóðamálum. Utanríkisþjónustan þarf nú sem fyrr að hámarka möguleika íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum, t.d. með gerð fríverslunarsamninga. Mikilvægir áfangar hafa náðst á því sviði, svo sem fríverslunarsamningur við Indland sem undirritaður var fyrr á árinu og uppfærsla á fríverslunarsamningi við Síle. Þá standa m.a. yfir viðræður við Taíland, Víetnam og Kósovó. Auk þess er unnið að uppfærslu fríverslunarsamnings við Úkraínu.

Framlög til stuðnings Úkraínu eru afar þýðingarmikið framlag til öryggis og varna Íslands og framgangs þeirra gilda sem eru nauðsynleg tilvist okkar fullveldis. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 4 milljarða kr. hækkun til að mæta áformum um stuðning við Úkraínu sem sett voru fram með þingsályktunartillögu í mars síðastliðnum. Þessum framlögum er skipt niður á málefnasviðin tvö og í skiptingu framlaganna og umfangi þeirra þarf að taka tillit til framvindunnar og alþjóðlegra skuldbindinga sem Ísland ásamt samstarfsþjóðum sínum hefur undirgengist, en stuðningur við Úkraínu er sífellt til umræðu og aðilar þurfa að vera tilbúnir að bregðast hratt við.

Framlög til málefnasviðs 4, utanríkismála, hækka úr 15,8 milljörðum kr. árið 2024 í rúmlega 19,2 milljarða kr. á næsta ári. Mest vegur þar hækkun framlaga til varnartengds stuðnings við Úkraínu en hér undir falla um 1,5 milljarðar kr. af heildarstuðningi til Úkraínu. Þá eru framlög til öryggis- og varnarmála aukin um 700 millj. kr. til að tryggja rekstur varnarinnviða og þátttöku í sameiginlegum verkefnum Atlantshafsbandalagsríkja í samræmi við öryggis- og varnarskuldbindingar Íslands.

Fjárlaganefnd lagði til í nefndaráliti sínu við gerð fjármálaáætlunar að opnað verði nýtt sendiráð í Madríd á næsta ári og er kostnaður við það áætlaður 177 millj. kr. á árinu 2025 og hluti af því er einskiptisstofnkostnaður. Þá var bætt í stuðning við ferðaþjónustu með því að efla útgáfu Schengen-vegabréfsáritana í löndum utan Evrópu og er gert ráð fyrir 200 millj. kr. vegna þess. Tekjur af þessari útgáfu vegabréfsáritana flokkast sem ríkistekjur og renna beint í ríkissjóð, en áætlað er að aukning ríkistekna vegna þessa vegi upp aukin útgjöld og rúmlega það.

Að lokum er gert ráð fyrir breytingum á samningsbundnum framlögum vegna fjölþjóðasamstarfs, aðallega vegna aukins framlags Íslands til Uppbyggingarsjóðs EES sem hækkar í samræmi við nýja áætlun sem samið var um undir lok síðasta árs. Á sama tíma er gert ráð fyrir að aðhaldsaðgerðir sem gripið verður til á árinu muni skila tæplega hálfum milljarði króna í hagræðingu á árinu fyrir ráðuneytið í heild. Verður þessu mætt með forgangsröðun og útvistun verkefna, niðurfellingu varasjóðs og samdrætti í starfsmannahaldi. Gert er ráð fyrir að framlög til málefnasviðs 35, alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, hækki úr rúmlega 13,1 milljarði kr. árið 2024 í rúmlega 15 milljarða á næsta ári. Þar vegur þyngst 2,5 milljarða kr. framlag til mannúðaraðstoðar og efnahagslegrar uppbyggingar í Úkraínu og er það hinn hlutinn af þeirri fjárhæð sem endurspeglar þingsályktunartillöguna og samþykkta þingsályktun. Útgjöld málefnasviðsins miðast við ákveðið hlutfall af vergum þjóðartekjum en samkvæmt stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028 er áætlað að framlög nemi 0,37% af vergum þjóðartekjum árið 2025 samanborið við 0,35% árið 2024. Starfið grundvallast jafnframt af fyrrgreindri stefnu og framlögum því varið til verkefna sem lúta að uppbyggingu mannauðs- og grunninnviða, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og viðbrögðum við loftslagsmálum auk verkefna í þágu mannréttinda og kynjajafnréttis, með áherslu á fátækustu ríki heims. Drjúgum hluta framlaganna verður einnig varið til mannúðaraðstoðar til að bregðast við þeirri miklu neyð sem víða hefur skapast vegna átaka og náttúruhamfara. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Öryggi okkar og sjálfstæði byggist á traustu alþjóðakerfi og virðingu fyrir alþjóðalögum og friðhelgi landamæra. Við þurfum að hlúa að alþjóðlegu samstarfi og standa vörð um hagsmuni Íslands.