155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:11]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu og í raun fyrir að fara yfir þennan samanburð, hann kemur ekki vel út fyrir Ísland. Við settum okkur markmið um að við gætum borið okkur saman við Norðurlöndin. Jafnvel ef við myndum taka tillit til varnartengds stuðnings og segja að það sé kannski eðlilegt að við séum ekki á sama stað og þau vegna eðlismunar þar á, þá myndum við að öðru leyti vilja vera í þessum samanburði. Okkur tókst að halda í það framan af en það hefur síðan breyst. Það munar sannarlega um hækkun um 4 milljarða, sérstaklega miðað við árið í ár, sem ég vona að við getum tekið eitthvað á fram að áramótum, en það dugar alls ekki til að geta staðist samanburð við Norðurlöndin. Þrátt fyrir að ég hafi verið mjög þakklát þverpólitískum stuðningi hér á þingi og miklum stuðningi íslensku þjóðarinnar við að taka skýra afstöðu og vera hluti þeirra vina og bandamanna sem leggja fram hjálparhönd, að stórum hluta vegna þess að það eru okkar beinhörðu hagsmunir, þá hræðist ég aðeins að ef við til að mynda værum hér og úti í samfélaginu að ræða ákvarðanir þannig að við værum í samanburði við Norðurlöndin — myndi það hafa sama stuðning ef við værum í slíku samtali um útgjöld ríkissjóðs í þessum stuðningi og myndum tengja það með beinum hætti við okkar hagsmuni? Ég hef örlitlar áhyggjur af því og jafnvel meira en örlitlar að svo væri ekki. Ég er þakklát fyrir stuðninginn, (Forseti hringir.) en við erum bara ekki lengur í samanburði við Norðurlöndin og mér finnst það vont, verandi samfélag sem treystir algerlega á að þetta haldi og að þessi lönd ásamt öðrum myndu koma hingað ef eitthvað bjátar á.