155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:14]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýr og heiðarleg svör. Það er alveg ljóst af þessum tölum, eins og fram kom í upplýsingunum sem ég las upp áðan, að stuðningurinn hefur dalað. Ég tek undir áhyggjur hæstv. ráðherra af því hvort stuðningurinn sé kannski ekki eins almennur úti í samfélaginu, nú þegar þetta innrásarstríð er komið á þriðja ár, og hann var í upphafi. Ég tek undir nauðsyn þess að úthald okkar bresti ekki. Það á auðvitað við um alla bandamenn okkar í Evrópu og annars staðar og einnig innan NATO. Mig langar rétt í lokin að inna hæstv. ráðherra eftir því hvort það geti verið að framlög til Úkraínu séu að lækka framlög til þróunarsamvinnu. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir þessu í tölunum og hef ekki haft tækifæri til að skoða það nógu vel, en það væri gott að fá svar við því.