fjárlög 2025.
Herra forseti. Nei, þegar útgjöld eru mannúðartengd flokkast þau sem þróunarsamvinna en við erum ekki að taka af þeim grunni sem hefur farið í hina hefðbundnu þróunarsamvinnu með fjármunum til Úkraínu, heldur er það viðbót sem hjálpar okkur vissulega að ná markmiðum í samræmi við þingsályktun um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu. En það sem flækir þá mynd er að þegar við í fjárlagavinnu flokkum ákveðinn kostnað sem DAC-tækan og þegar málsmeðferð í hælismálum tekur breytingum og það er alltaf meiri og meiri kostnaður sem er ekki DAC-tækur en er sannarlega kostnaður hjá ríkissjóði, þá þurfa útreikningar að taka mið af því. Það gæti því komið til þess að það sem gert er ráð fyrir að sé DAC-tækt verði það ekki, sem getur þá dregið aðeins niður það sem flokkast sem þróunarsamvinna. (Forseti hringir.) En þróunarsamvinnupeningar sem eru merktir Úkraínu eru ekki teknir af öðrum verkefnum í þróunarsamvinnu.