fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Aðeins varðandi stuðning til Úkraínu. Utanríkisráðherra lýsti yfir vonbrigðum með að hann væri ekki sá sami og á öðrum Norðurlöndum. Ég get tekið sem dæmi að Noregur er í ár að styðja Úkraínu um 22 milljarða. Það eru 284 milljarðar íslenskra króna. Við getum sagt að það séu um 18 milljarðar miðað við það að Norðmenn eru 15 sinnum fleiri en við. Ef við tökum bara borgaralega stuðninginn eru þeir með 8 milljarða norskra króna, sem jafngildir 110 milljörðum íslenskra króna. Miðað við höfðatölu ættum við að styðja Úkraínu um 7,3 milljarða, ef við ætlum að ná Noregi. Ég tel að við eigum ekki að miða okkur við þessi ríki. Við eigum að sætta okkur við að vera í 4 milljörðum, tel ég. Mig langaði að koma með þetta innlegg vegna þess að samanburður við Norðurlöndin er mjög erfiður, sérstaklega varðandi Noreg með sína olíusjóði o.s.frv. og landamæri við Rússland.
Það kemur fram að framlög til málaflokksins hækka um 700 milljónir vegna styrkingar varnartengdra verkefna, 700 millj. kr. á næsta ári. Fyrri áætlun gerði ráð fyrir 500 millj. kr. hækkun en 200 milljónum er bætt við. Í fyrsta lagi langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvað er átt við með varnartengdum verkefnum? Það er talað um að það sé aukin alþjóðasamvinna, fjárstuðningur, endurbætur og uppbygging innviða — ef hæstv. ráðherra gæti fjallað um það hvað verið er að tala um þegar talað er um varnartengd verkefni, hvort við séum að fara að setja enn meiri útgjöld í þennan málaflokk. Þar sem ég er að tala um þetta mál þá er einnig minnst á rekstur tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna. Hvað er átt við þegar talað er um rekstur tvíhliða samnings, annað en að það sé framkvæmd varnaræfinga? Er ekki kominn tími til að endurnýja þann samning þegar við horfum á sæstrengi og annað slíkt? Væri ekki eðlilegt að Bandaríkjamenn (Forseti hringir.) kæmu þá inn í það í slíkum samningi, að þeir sæju um varnir þar; hvort það sé innan NATO eða ekki. Það væri gott að fá að heyra álit hæstv. utanríkisráðherra á þessu.