fjárlög 2025.
Herra forseti. Varðandi fyrri spurningu hv. þingmanns, um aðild Grænlands og Færeyja að Norðurlandaráði, þá höfum við almennt í gegnum tíðina stutt þau í þeirra vilja til að taka meira pláss og vera virkari þátttakendur í því samstarfi. Þetta er auðvitað þingmannasamstarf þannig að það eru takmörk fyrir því að hve miklu leyti ráðherrar stíga inn í það. En við höfum stutt þau í því og Vestnorræna ráðið hefur tekið undir það og almennt hef ég meira en fullan skilning á vilja þeirra til að gera það. Þau segja: Heyrðu, annaðhvort fáum við að vera meira með eða við þurfum að endurskoða veru okkar í þessu öllu saman. Þegar svo er komið held ég að það hljóti að vera til mikils að vinna að halda þessu saman og að þau fái beinan og virkari þátttökurétt.
Varðandi Madríd: (Forseti hringir.) Jú, ég veit að spænsk-íslenska viðskiptaráðið áformar ferð til Madríd með sendinefnd sem ég mun fara með í og leiða. (Forseti hringir.) Þar munum við nota tækifærið og munum áfram finna leiðir til þess að vekja athygli, bæði hér heima og þar, til að ýta undir frekari viðskipti.